You are currently viewing Uppáhalds veiðistaðurinn – Sigurður Garðarsson
Uppáhalds veiðistaðurinn – Sigurður Garðarsson

Eins og margir vita fórum við af stað með smá leik þar sem veiðimenn segja frá uppáhalds veiðistaðnum sínum. Fjölmargir hafa sent inn nú þegar og þökkum við góðar viðtökur.

Ef þú vilt vera með, endilega sendu smá texta og mynd af uppáhalds veiðistaðnum þínum á: johann@kolskeggur.is

Flott verðlaun í boði, tvær stangir í Eystri Rangá í júní og október. Senda má inn til 31.03 og dregið verður 01.04.

Sigurður Garðarsson ríður á vaðið og sendi hann okkur þessa frásögn og meðfylgjandi mynd:

Það eru svo margir uppáhalds að það er erfitt að nefna einhvern einn. Þegar ég hugsa til Eystri er þó bara einn sem kemur til greina.
Tunguvaðið hefur alltaf átt sérstakan sess hjá mér frá því ég veiddi þar fyrst´97. Þá var gríðarlega mikill fiskur á svæðinu.
Bæði er það að umhverfið er aðlaðandi, og mér hefur oft gengið sérstaklega vel þar. Þegar maður kemur fram á brúnina ofan við Fiská á leið inn í Krappa, og lítur yfir þetta fallega svæði,er bara einn staður sem togar í mann, þó aðrir góðir séu í boði.
Það er bakkinn við Tunguvaðið.

Kveðja Sigurður Garðars