You are currently viewing Hólsá Austurbakki í sumar!
Hólsá Austurbakki í sumar!

Þrátt fyrir snjóbyl úti þessa stundina þá styttist óðfluga í sumarið. Nú er aðeins rétt tæpur mánuður í að við getum farið að renna fyrir silung og er það fín upphitun fyrir laxveiðina sem opnar hjá okkur 20. júní.

Og talandi um silungsveiði. Við bjóðum upp á sjóbirtingsveiði á Austurbakka Hólsár. Aðeins eru seldar helgar og svæðið að mestu hvílt á milli. Hollið er á aðeins 290 þús og er pláss fyrir 12 veiðimenn í glæsilegu húsi.

Hér má sjá hvað er laust í vor: https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-vorveidi/

Því næst færum við okkur yfir í laxinn. Hólsá er skipt í tvo svæði, neðra og efra. Nú nýlega voru reist einföld hús fyrir neðra svæðið sem gjörbyltir aðstöðu fyrir veiðimenn. Svæðið er gríðar víðfemt og gott pláss fyrir stangirnar 4. Við slepptum hátt í 40 þús seiðum í tjörnina á svæðinu og búumst við góðri veiði næsta sumar.

Hér má sjá hvað er laust á neðra svæðinu: https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-nedra-svaedi/

Hólsá efra svæði hefur sannað sig i gegn um tíðina og er ákaflega vinsælt. lítið er eftir að hollum í sumar en þó losnaði eitt holl á góðum tíma eða 7-9.07. Hafir þú áhuga á því er best að hafa samband við undirritaðann.

Við eigum líka flott holl í júní til að kljást við stórlaxinn. Sjá má laus holl Hér: https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-adalsvaedi/

Veiðikveðja

Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is