Kæri veiðimaður,
Við vildum vekja sérstaka athygli á að við eigum enn eftir fimm stangir í Eystri Rangá þann 13.10. Andvirði allra seldra stanga þann dag rennur óskipt til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hægt er að skoða og kaupa hér: Eystri Vefsala
Komist þú ekki þann dag er enn um nóg að velja og við vorum að setja valda daga í haust á tilboð sem finna má í vefsölunni okkar. Haustið getur verið skemmtilegur tími í Eystri og þá er hægt að komast í ódýra veiði með góðri veiðivon.
Hér má skoða leyfi: Eystri Vefsala
Ágætlega veiddist síðasta haust og hér má sjá umfjöllun um veiðina í október: Eystri í október
Áin á töluvert enn inni og þar hjálpar að við erum með hóflegan kvóta allt tímabilið auk þess sem stærri hængum er sleppt aftur í ána.
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is