You are currently viewing Dagur í Eystri Rangá – fjáröflun fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Dagur í Eystri Rangá – fjáröflun fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Kæru veiðimenn,

Við hjá Kolskegg/ASP vildum láta gott af okkur leiða og höfum ákveðið að öll sala veiðidaginn 13.10. næstkomandi í Eystri Rangá renni óskipt til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Árlega greinast um 12-14 börn á íslandi með krabbamein og það þarf ekki að taka fram hvílíkt reiðarslag það er fyrir barnið, fjölskyldu og vini. Styrktarfélag krabbameinsjúkra barna styrkir fjölskyldur þessara barna og er sá stuðningur ómetanlegur fyrir þær fjölskyldur sem lenda í þessum hremmingum.

Hér má lesa sér til um félagið: https://www.skb.is/

Við vonum að þið takið vel í að kaupa veiðileyfi til styrktar SKB. Ef allar 12 stangir seljast getum við styrkt félagið um 540.000 krónur.

Hér má kaupa veiðileyfi: Til styrktar SKB

Veiðikveðja

Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is