Nú er þetta aaaalveg að byrja. Silungur og sjóbirtingur byrjar á þriðjudaginn og menn orðnir ansi spenntir. Spáin mætti vera betri en svona er þetta og veiðimenn láta fátt stoppa sig í að ná í töku.
Svo er það laxveiðin sem byrjar næst og ekki eru nema tæpir þrír mánuðir í veisluna. Við hjá Kolskegg höfum upp á margt að bjóða í laxveiðina og ein áin er Eystri Rangá. Eins og menn vita er Eystri ein besta á landsins og hefur haldið þeim sess í lengri tíma.
Sama magni var sleppt í ána undanfarin ár og eigum við því vonandi von á flottri veiði í Eystri Rangá í sumar. Hægt er að gera góð kaup á leyfum í ána á haustin og þá er líka veiðivon ágæt. Eystri Rangá opnar aðeins síðar í ár eða 29.06. Eingöngu má veiða á flugu til 01.09 en veiða má á maðk og spæni auk flugunnar eftir það.
Hér má sjá framboðið í Eystri Rangá: https://kolskeggur.is/product-category/eystri-ranga/
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is