You are currently viewing Hólsá neðra svæði
Hólsá neðra svæði

Neðra svæði Hólsár er spennandi kostur í sumarveiðinni þar sem þar fer saman góð veiðivon og lágt verð. Svæðið nær frá og með stað 1 sem er ós Hólsár að hafi til og með stað númer 13. Svæðið er langt og vel rúmt um stangirnar fjórar sem það veiða.

Óhemja af laxi fer um svæðið á leið sinni í báðar Rangárnar og Þverá, þeir sem stunda svæðið hafa náð ævintýralegri laxveiði þegar göngurnar fara í gegn og það er alltaf von á silungi á svæðinu.

Verði er stillt í hóf eða frá 30-40 þúsund stöngin á dag en seldar eru tvær saman í pakka. Svæðið er eingöngu selt sér á besta tíma eða frá 01.07 -15.08.

Hér má kynna sér svæðið: Hólsá neðra svæði

Hér má skoða og kaupa veiðileyfi: Veiðileyfi Hólsá

Veiðikveðja

Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is