Það hefur verið ágætis gangur í Eystri Rangá og gaf siðasta vika 341 lax. Það er veitt á 18 stangir í ánni og gera þetta því tæpa þrjá laxa á stöng á dag sem er með því besta á landinu. Ef þú vilt komast í Eystri þá getum við glatt þig með að nokkar stangir losnuðu vegna forfalla. Sjá má dagsetningarnar hér fyrir neðan.
11-14.08 1 st
12-14.08 1 st
14-17.08 3 st
17-20.08 4 st
21-23.08 2 st
20-23.08 1 st
5-7.09 3 st
7-10.09 3 st
Hafir þú áhuga á einhverjum af þessum dagsetningum er best að hafa samband – johann@kolskeggur.is
Svo erum við líka með daga í vefsölunni, t.d staka daga í ágúst sem sjá má hér: https://kolskeggur.is/product-category/eystri-ranga/
Veiðikveðja
Jóhann Davíð