You are currently viewing Er hann kominn?
Er hann kominn?

Nú er farið að styttast ískyggilega í opnun hjá okkur í Eystri Rangá en áin opnar á þriðjudaginn. Við opnum ána aðeins síðar en síðustu ár en í fyrra var opnunin þann 15.06.

Við trúum því staðfastlega að sá silfraði sé mættur í ána og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með opnunardeginum. Hólsá opnaði í gær þann 15 og þar sá veiðimaður að hann hélt lax stökkva fyrir framan veiðihúsið en við seljum það ekki dýrara en við keyptum það.

Enn eru til stangir í Eystri Rangá í júní sem skoða má hér í vefsölunni: https://kolskeggur.is/product-category/eystri-ranga/