Það er komið smá vor í þetta og ekki laust við að maður finni lyktina af sumrinu. Það styttist óðfluga í laxveiðina og við eigum marga flotta kosti eftir.
Í Eystri Rangá var sleppt jafn mörgum seiðum og undanfarin ár og sleppingar gengu vel. Þess má geta að við sjúm nú sjálf um sleppingar og tjarnir á okkar veiðisvæðum og vöndum mjög vel til verka.
Eystri Rangá verður opnuð ögn seinna í ár eða þann 29.06. Uppselt er í kring um opnun og langt inn í sumarið. Haustið hefur alltaf verið skemmtilegur tími í ánni og þá eigum við marga góða kosti í boði. ég vil vekja sérstaka athygli á holli með Kalla Lú 12-14.09. Þar verður skemmtilegur hópur við veiðar og ævintýri í boði.
Hér má bóka stöng í því holli og skoða annað sem er laust: https://kolskeggur.is/product-category/eystri-ranga/
Affallið var lengi vel ein besta á landsins og komust færri að en vildu. Áin datt svo í smá lægð síðustu ár og nú ber svo við að hægt er að tryggja sér holl á góðum tíma. Flott veiðihús og aðstaða er við Affallið.
Hér má sjá hvað er laust: https://kolskeggur.is/product-category/affall/
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is