Nú er vorlegt í lofti og tilvalið að fara að láta sig hlakka til sumarsins. Við lumum enn á fjölmörgum skemmtilegum veiðileyfum á okkar ársvæðum.
Þverá í Fljótshlíð var að koma í sölu og er þar hægt að næla sér í veiðileyfi á góðu verði. Þverá er skemmtileg lítil á í Fljótshlíðinni þar sem brúka má maðk og flugu.
Hér má sjá framboð í Þverá í sumar og kaupa leyfi: Þverá
Hólsá Austurbakki skiptist í Aðalsvæði og neðra svæði og eru bæði svæði seld með gistingu. Á aðalsvæðinu eru sex stangir og glæsilegt veiðihús með sex tveggja manna herbergjum sem eru öll með baði. Vel er selt á svæðið í sumar en við eigum enn nokkra áhugaverða kosti.
Hér er hægt að sjá framboðið: Hólsá Aðalsvæði
Nokkuð stutt er síðan reist voru ný hús fyrir Neðra Svæði Austurbakka Hólsár og hafa veiðimenn tekið þeim vel. Við lækkuðum verðin í sumar og þarna er hægt að gera góð kaup í laxveiði með gistingu.
Hér má sjá framboðið á Neðra Svæði Hólsár – Hólsá neðra
Að lokum viljum við benda á Affallið en þar hafa aldeilis ævintýrin gerst í gegn um tíðina. Við lækkuðum verðin fyrir sumarið og erum að vona að áin nái fyrri styrk. Við eigum mörg flott holl á lausu sem sjá má hér: Affall
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is