You are currently viewing Hólsá Austurbakki -Ævintýri í sumar
Hólsá Austurbakki -Ævintýri í sumar

Nú er rétt minna en mánuður þar til við opnum á Austurbakka Hólsár og spenningur er farinn að færast í aukanna. Nú í sumar bjóðum við upp á tvö veiðsisvæði líkt og síðustu ár. Þar ber fyrst að nefna aðalsvæðið sem nær frá Ármótum til og með Djúpós.

Aðalsvæðið er gríðarskemmtilegt svæði sem getur gefið ævintýralega veiði. Vel var sleppt af seiðum síðasta sumar og við hlökkum til að sjá afraksturinn. Enn eigum við nokkur holl fyrir stórlaxinn í júní og að auki eigum við flott holl í september. September í fyrra var mjög góður á svæðinu.

Hér má sjá laus holl í sumar: https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-adalsvaedi/

Á neðra svæðinu höfum við gjörbreytt allri aðstöðu með því að bjóða upp á einfalda gistingu með veiðinni. Það er sleppitjörn á svæðinu sem vel var sleppt í síðasta sumar og og erum við að vonast eftir góðri veiði í sumar.

Nokkur holl eru eftir á góðu verði sem sjá má hér: https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-nedra-svaedi/

Veiðikveðja

Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is