í Hólsá hefur alltaf verið töluverð sjóbirtingsveiði og veiddust til að mynda um 300 sjóbirtingar í ár samkvæmt veiðibók. Skráningum hefur verið ábótavant á silung þannig að við teljum að þeir hafi verið mun fleiri.
Og þetta eru engir tittir! Allt upp í og yfir 20 punda sjóbirtingar hafa veiðst í Hólsá!
Við seljum ána á mjög hóflegu verði í vorveiðinni. Tveggja daga holl kostar frá 200.000 krónum og má þá veiða á allt að sex stangir. Ef 12 manns fara saman þá er þetta ekki nema 16.600 krónur á mann með húsi og veiði í tvo daga!
Glæsilegt hús fylgir svæðinu þar sem er að finna 6 herbergi sem eru öll með baði, það er risaverönd og grill og bara allt til alls.
Hægt er að skoða og bóka holl hér: Hólsá – veiðileyfi
Eða með því að hafa samband við undirritaðann
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is
s: 7937979