Þá er búið að slökkva ljósin í vöðlugeymslunni og nú tekur við biðin eftir næsta tímabili. Heilt yfir erum við hjá Kolskegg mjög ánægð með tímabilið. Ekki var laust við smá skjálfta í byrjun þar sem þetta fór hægt af stað en hrökk svo með látum í gang. Miðað við magnið af smálaxi í ánum gerum við ráð fyrir mun sterkari byrjun á næsta ári þegar stórlaxinn skilar sér vonandi í góðu magni fyrr í árnar.
Eystri Rangá endaði í 5158 löxum miðað við 2870 árið 2025. Þetta er mikil og góð bæting á milli ára sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að við fækkuðum stöngum niður í 16. Veiði á lax per stöng er með því besta sem sést á landinu.
Affallið Endaði með 304 laxa á móti 156 í fyrra, þetta er gleðiefni en því miður verður ekki veitt í Affallinu á næsta ári þar sem ekki voru til seiði til að sleppa í ána.
Hólsá Austurbakki endaði nokkurn veginn á pari við árið 2025 með 473 laxa veidda. Við vonumst til að sjá svæðið enn betra á næsta ári en veiðin þar fór hægt af stað líkt og á öðrum svæðum.
Takk kærlega fyrir komuna og allar minningarnar í sumar. Við sjáumst hress á bakkanum í apríl.
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – johann@kolskeggur.is