
Kolskeggur býður upp á veiðileyfi bæði í lax og silungsveiði. Við sérhæfum okkur í ám á suðurlandi en þar erum við að selja í eftirtaldar ár:
Eystri Rangá – https://kolskeggur.is/eystri-ranga/
Eystri Rangá þarf vart að kynna enda er hún sú á sem skilaði mestri veiði á landinu árið 2020. Veitt er frá 01.07 -20.10. Aðeins má veiða með flugu fram til 01.09 en blandað agn eftir það. Við Eystri Rangá er veiðhús sem býður upp á fulla þjónustu. Skyldugisting til 12.09 en seldir heilir dagar án gistingar frá 13.09.
Hægt er að kaupa veiðileyfi í Eystri Rangá hér í vefsölu – https://kolskeggur.is/product-category/eystri-ranga/
Hólsá Austurbakki – https://kolskeggur.is/holsa-austurbakki/
Austurbakki Hólsár er frábært veiðisvæði með flottu sjálfmennskuhúsi. Austurbakkinn nær frá ármótum við Eystri Rangá og Þverá og sem leið liggur út í sjó. Allur lax sem gengur í Rangárnar fer í gegn um Hólsá svo það er gríðarlegt magn af laxi sem fer þarna í gegn.
Hægt er að kaupa veiðileyfi í Hólsá hér í vefsölu – https://kolskeggur.is/product-category/holsa-austurbakki-adalsvaedi/
Affall – https://kolskeggur.is/affall/
Affallið var ein besta veiðiá landsins árið 2020 með yfir 1700 laxa á land. Affallið er fjögura stanga á með ágætu sjálfmennskuhúsi. Affallið er uppselt fyrir árið 2021 og er því ekki veiðileyfi í vefsölu.
Þverá í Fljótshlíð – https://kolskeggur.is/thvera/
Þverá er skemmtileg lítil á í Fljótshlíðinni sem gaf hátt í 700 laxa árið 2020. Þverá er fjögurra stanga á sem er seld í tveggja daga hollum án gistingar.
Eins og sjá má hefur Kolskeggur upp á að bjóða flott úrval veiðileyfa sem ættu að hæfa öllum sem vilja fara út að veiða