Skilmálar persónuverndar
Við hjá Kolskegg leggjum áherslu á að tryggja öryggi persónupplýsinga notenda sem nota vefinn okkar. Við förum með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
Þegar viðkiptavinur notar vörur, þjónustu og vefsíðu Kolskeggs veitir viðskiptavinur samþykki sitt fyrir þessum skilmálum sbr. 1.tl.1.mgr.laga um persónuvernd nr. 77/2000. Hugtök skulu hafa sömu merkingu í skilmálum þessum og þau hafa í lögunum.
Kolkseggur safnar/notar persónuupplýsingar í þeim tilgangi að gera viðskiptavinum kleift að nýta sér þá þjónustu og þær vörur sem Kolskeggur ehf býður viðskiptavinum, til að greiða fyrir útsendingu reikninga bókhaldi og endurskoðun.
Kolskeggur hefur sett sér eftirfarandi reglur við úrvinnslu og geymslu persónuupplýsinga.
- Skráðar upplýsingar um viðskiptavini skulu alltaf vera í lágmarki,
- Kolkseggur skráir og vinnur með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna tilgangs vinnslu, þ.e. lágmörkun gagna
- Kolskeggur geymir gögn að hámarki í eitt ár en oftast skemur
- Kolskeggur hefur virka aðgangsstýringu ásamt því að persónuupplýsingar eru tiltækar til afhendingar fyrir viðskiptavini þegar þeir óska eftir þeim.
Viðskiptavinir Kolkskeggs eiga rétt á að rangar, villandi eða ófullkomnar persónuupplýsingar séu leiðréttar eða þeim eytt. Viðskiptavinir eiga rétt á að persónuupplýsingum sé eytt ef ekki er lengur málefnanleg ástæða til að varðveita þær. Undantekning á þessu eru persónuupplýsingar sem félaginu ber skylda til að varðveita skv. lögum eða öðrum reglum.
Kolskeggur safnar aldrei eða vinnur með persónuupplýsingar nema með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og gætir þess jafnframt að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga.
Að því leyti sem þessum skilmálum sleppir gilda viðeigandi lög og reglur hverju sinni.
Ef þú hefur einhverjar spurningar þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á info@kolskeggur.is