Breiðdalsá
Stórbrotið umhverfi og stórlaxavon
Margir veiðimenn þekkja Breiðdalsá en hún er ein af fallegri ám landsins. Áin hefur verið í lægð síðustu ár en við ætlum að rétta hlut hennar og gera hana að spennandi valkost að nýju. Seiðasleppingar hafa verið stórauknar og við gerum ráð fyrir mun betri veiði strax árið 2024.
Falleg á í fjallasal!
Breiðdalsá á upptök sín til fjalla þar sem kristaltærir fjallalækir renna saman og mynda árnar-Tinnudalsá, Suðurdalsá og Norðurdalsá. Þessar ár renna svo saman og mynda stærri ána – Breiðdalsá. Margir flottir veiðistaðir eru í ánni og aðgengi er mjög gott. Breiðdalsá er veidd með sex til átta stöngum á laxveiðitímabilinu frá 20.06-20.09.
Almennar upplýsingar
Staðsetning: Breiðdalur, um 607 km frá Reykjavík.
Tímabil: 20/6 – 20/09.
Daglegur veiðitími: 8-13 og 15-20
Leyfilegt agn: Einungis fluga
Kvóti: Veiða og sleppa
Stangir,tímabil og veiðisvæði
20.06-19.07 og 10-20.09 – Veitt er með 6 stöngum.
19.07 -10.09 – Veitt með 8 stöngum.
Veiðisvæði: Öll Breiðdalsá, Tinnudalsá og Norðurdalsá. Skipt í 3-4 svæði eftir tímabili.
Reglur
Staðhættir og aðgengi er gott, bílfært er að langflestum veiðistöðum. Að hámarki mega vera tveir veiðimenn á stöng. Veiðimenn mega koma í hús 30 mínútum fyrir veiðitíma.
Veiðibók: liggur frammi í húsi umsjónarmanns við Veiðihúsið Eyjar. Skylt er að skrá allan afla daglega og tilkynna merkta laxa til umsjónarmanns.
Veiðiumsjón
Albert Jensson
8934013
Veiðihús
761 Breiðdalsvík
Sala veiðileyfa
Jóhann Davíð Snorrason
793 7979